Skilmálar


Eftirfarandi skilmálar og skilyrði gilda um frk.is vefverslun.

Vefverslunin FRK.is er rekin af Rós design ehf, Garðatorgi 3, 210 Garðabæ. Kt. 531108-1400, vsk númer 103555. Sími 781-3090, Tölvupóstfang frk.vefverslun@gmail.com.


FRK.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis. 

AFHENDING
Þú getur valið um tvenns konar afhendingarmáta: Að fá vöruna senda með Íslandspósti (postur.is) eða valið að sækja hana eftir að hafa fengið tölvupóst um að varan sé tilbúin til afhendingar í versluninni Baum und Pferdgarten á Garðatorgi. 

Ef þú velur póstleiðina sækir þú pakkann á næsta pósthúsi. Helgarpantanir fara í póst næsta virka dag. Pöntun send með Íslandspósti  tekur venjulega tvo virka daga eða skemur og þú færð SMS þegar sendingin er lögð af stað. Sending með pósti kostar 1200 kr, nema ef pantað er fyrir 25.000 kr eða meira þá fellur sendingargjald niður. 
Ef þú velur að sækja pöntunina í verslun okkar þá getur þú nálgast vöruna um leið og þú hefur fengið tilkynningu um að pöntunin sé tilbúin, í Baum und Pferdgarten á Garðatorgi 3 í Garðabæ, gegn framvísun kvittunar á tölvupósti.

Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Rós design ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Týnist vara í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá rosdesign.is til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Hægt er að greiða 590 kr. fyrir rekjanlegt bréf.

VERÐ Á VÖRU OG SENDINGARKOSTNAÐUR
Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk. Ekkert sendingargjald er á pöntunum þar sem keypt er fyrir 25.000 kr og yfir nema annað komi fram í lýsingu á vöru. Allar vörur úr vefversluninni eru sendar með Íslandspósti, Póstinum.

REGLUR UM SKIPTI OG VÖRUSKIL
Hægt er að skila:
-Fatnaði
-Skóm

Ekki er hægt að skila:
-Sokkum
-Snyrtivörum þar sem innsigli er rofið
-Útsöluvöru

-Vörum sem búið er að taka miða af. 

Skilafrestur er einn mánuður. Kassakvittun eða kvittun úr vefverslun er skilyrði fyrir vöruskilum. Hafi viðskiptavinur ekki kvittun, en viðkomandi vara er greinilega keypt í rosdesign.is og er enn til sölu í versluninni, getur viðskiptavinur fengið inneignarnótu. Þá er óskað eftir framvísun persónuskilríkja með mynd.

Ávallt er gefin út inneignarnóta á kennitölu þegar vöru er skilað.

Hægt er að skila vöru sé um vörugalla að ræða. Skilafrestur er eitt ár frá kaupum. Kassakvittun eða kvittun úr vefverslun er skilyrði fyrir vöruskilum. Hafi viðskiptavinur ekki kvittun, en viðkomandi vara er greinilega keypt í rosdesign.is og er enn til sölu í versluninni, getur viðskiptavinur fengið inneignarnótu. Þá er óskað eftir framvísun persónuskilríkja með mynd.

Ávallt er gefin út inneignarnóta á kennitölu þegar vöru er skilað.

Ávallt er boðin viðgerð á gallaðri vöru, ef því verður komið við.

Ef ekki fæst nákvæmlega eins vara ógölluð fær viðskiptavinur vöruna endurgreidda.

Upphæð inneignarnótu eða endurgreiðslu
Upphæð inneignarnótu eða endurgreiðslu skal vera það verð sem kemur fram á kassakvittun. Liggi kassakvittun ekki fyrir skal upphæð inneignarnótu eða endurgreiðslu vera það verð sem gildir í versluninni þann dag sem skil eiga sér stað.

Inneignanóta gildir í 2 ár frá útgáfudegi.

TRÚNAÐUR - ÖRYGGI
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Sjá nánar um Persónuverndarstefnu.

LÖG OG VERNDARÞING
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Mál vegna hans skal rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.